24/09/26

Hvað er íslenskt? Eru neytendur blekktir?

Nýverið birti Morgunblaðið grein eftir Hákon Frey Hovdenak, sem er eigandi Hovdenak Distillery ehf. Greinin ber nafnið Er innflutt kál sem pakkað er í poka á Íslandi orðið íslensk vara? og birtum við hana hér í heild sinni

Eru okkar eigin kröfur um hvað sé íslenskt orðnar svo takmarkaðar að þetta skipti ekki máli lengur?

Fyrir ekki svo mörgum árum þótti svolítið flott að vörur væru í eigu íslenskra fyrirtækja, hannaðar af okkar hæfustu hönnuðum, framleiddar og pakkaðar í umbúðir sínar í hálfsteyptum og bárujárnsklæddum verksmiðjum landsins, sem flestar hafa fengið að falla fyrir nýsteyptum blokkum sem alls staðar virðast rísa þessa dagana.

Sem íslenskur framleiðandi get ég vel skilið að það sé litið hýru auga til annarra landa þegar kemur að vinnuafli, þetta er einn dýrasti einstaki kostnaður hvers fyrirtækis, laun.

Segjum sem svo að þú hafir stritað og harkað af þér íslenskt verðlag, laun og skatta í 20 ár, komið flottri íslenskri vöru á markað, en nú sé kominn tími til að slaka á og njóta erfiðisins sem þú hefur staðið af þér. Kemur vörunni í framleiðslu erlendis, flytur hana tilbúna til landsins, svo þú hafir eitthvað að gera með vinnuaflið sem hefur fylgt þér sl. tíu ár, þá fær það það verk að setja vöruna í poka, kassa, eða það sem við á, eftir því hvers eðlis varan er.

Ertu þá ekki að afsala þér réttindunum til að fá að kalla vöruna þína íslenska? Eru okkar eigin kröfur um hvað sé íslenskt orðnar svo takmarkaðar að þetta skipti ekki máli lengur? Fyrsta íslenska varan sem fékk verndað afurðaheiti var að sjálfsögðu íslenska lambið, þetta var árið 2018.

Getum við látið prjóna fyrir okkur lopapeysu í öðru landi, þar sem vinnuaflið er ódýrara, og selt hana sem íslenska? Nei, síðan 2020 hefur íslenska lopapeysan verið verndað afurðaheiti. Ákveðnum skilyrðum skal fylgt svo að hún geti kallast „íslensk lopapeysa“. Nokkrum árum seinna fylgdu svo íslenskt gin og íslenskt viskí, hvort tveggja samþykkt sem verndað afurðaheiti.

Undirritaður kemur að umsókninni sem varðar íslenskt gin. Frá upphafi starfsárs fyrirtækis míns höfum við farið, að okkar mati, heiðarlega leið að framleiðslu áfengra drykkja. Þó svo að fyrirtækið framleiði ekki áfengið frá grunni eru allar okkar vörur með áfengi sem er eimað í eimingartækjunum okkar. Hráspíri er bara grunnhráefni í áfengi og er ekkert sérstaklega góður óeimaður, þrátt fyrir að vera 96,6% hreinn. Þetta höfum við aldrei farið leynt með.

Hráspírinn er þó ekki orðinn að gini þegar hann kemur til landsins. Hjá okkur er hann kryddaður og látinn standa áður en hann er eimaður. Að eimingu lokinni er íslensku vatni bætt við og að lokum er vörunni pakkað. Þetta er framleiðslan sem gerir hráspírann að gini.

Kálið kemur til landsins sem kál, en ginið verður til hér.

Til þess að búa til íslenskt gin þarf eftirfarandi:

Varan þarf að vera eimuð á Íslandi, ein af hverjum fjórum kryddjurtum sem notaðar eru við bragðbætingu að vera fengin úr íslenskri náttúru, annaðhvort villt eða ræktuð hér á landi.

Eingöngu er hægt að nota náttúrulegar kryddjurtir, en ekki bragðefni.

Pökkun skal eiga sér stað á Íslandi og skal áfengisprósenta ekki vera undir 37,5%.

Samtök íslenskra eimingarhúsa komu þessari umsókn í gegn, til að vernda neytandann gegn innfluttum vörum sem sigla undir íslensku flaggi þrátt fyrir að uppfylla ekki þessi skilyrði, sem við hefðum haldið að væru lágmarkskröfur til að geta kallast „íslenskt“. Rétt eins og lopapeysan góða.

En kannski er þetta allt bara óþarfa vesen til þess eins að geta „framleitt“ vöru á Íslandi og skartað okkar fínasta á umbúðum hennar „made in Iceland“.

Eða eigum við að standa vörð um íslenska framleiðslu svo það verði ekki „maybe in Iceland“?

Höfundur er eigandi Hovdenak Distillery ehf.