26/10/26

Sáð og uppskortið í Úlfarsárdalnum

Morgunblaðið birti viðtal við Hafberg þann 24. október. Hér að neðan má sjá viðtalið.

Sjálfvirkni er ráðandi í starfsemi og framleiðslu garðyrkjustöðvarinnar Lambhaga í Úlfarsárdal í Reykjavík. Undir gleri eru 13.700 fermetrar af gróðurhúsum og þar er ræktað salat sem landanum líkar vel. Þess er vel gætt að réttu skilyrðin séu í gróðurhúsunum, það er hitastig, ljósmagn og raki. Samkvæmt því er ræktuninni hagað. Bakkar með salatplöntum eru lagðir á borð, sem færast áfram eftir því sem ræktun vindur fram. Skref fyrir skref og einn dagur í einu. Framvindan er örugg og bóndinn kann sitt fag. Morgunblaðið kynnti sér staðinn og starfsemina nú í vikunni.

„Sáð og svo uppskorið. Þetta er eins og í Biblíunni,“ segir Hafberg Þórisson, garðyrkjubóndi í Lambhaga og framkvæmdastjóri.

Íslendinga með skyrbjúg vantaði C-vítamín

Fræ fara í bakka daglega og svo fara færiböndin af stað. Ferlið er um það bil þrjátíu dagar en þá eru bönd og bakkar komin út á enda. Þar tekur starfsfólkið við og klippir salatblöðin af við mold og tekur til pökkunar. Hér er pakkað alls 500 tonnum af salati á ári, eða því sem næst tveimur tonnum á hverjum virkum degi. Þá er líka talin með framleiðsla og ræktun frá stöðinni að Lundi í Mosfellsdal, sem Hafberg starfrækir líka. Ræktun Lambhaga – á þessum tveimur stöðum – er því á alls um 20.000 fermetrum.

„Mín hugsjón var alltaf sú að fara að rækta grænmeti,“ segir Hafberg, sem árið 1960 var í sveit í Borgarfirðinum. Þar var honum sagt frá Íslendingum sem voru með skyrbjúg og illa haldnir af þeim sjúkdómi. Þá vantaði C-vítamín úr grænmeti í kroppinn. „Þetta snerti mig svo djúpt að ég hélt aðeins sextán ára út í garðyrkjunám sem ég stundaði í Noregi en síðar á Íslandi,“ segir Hafberg sem nærri 25 ára aldri kom til baka til Íslands.

Hann stundaði flugnám hér á Íslandi og úr lofti leit hann eftir stað sem gæti hentað fyrir starfsemi garðyrkjustöðvar, eins og hann vildi stofna. Hann lét orðið berast og Albert Guðmundsson heitinn, þá borgarfulltrúi, gekk í málið.

Þurfti að skapa skjólið

Hafberg var, þegar hér var komið sögu, jafnvel á leið úr landi til starfa, sem Alberti þótti afleitt. Hann lagði hart að honum að hefja starfsemi, enda gat hann hjá Reykjavíkurborg fengið lóð í Úlfarsárdalnum sem honum þótti henta vel.

„Þetta varð úr. Ég fékk lóðina hér í byrjun árs 1977 og hófst þá þegar handa. Ég byrjaði á útiræktun á grænmeti í átta litlum plastgróðurhúsum sem hvert um sig voru 44 fermetrar. Þau áttu reyndar til að fjúka þegar vindstrengur stóð hér fram Úlfarsárdal. Ég fór því fljótlega að byggja traustari hús og gróðursetja tré til að skapa skjól,“ segir garðyrkjubóndinn.

Viðleitni til að gera sífellt betur

Ræktun á salati hefur alltaf verið burðarásinn í starfsemi Lambhaga. Þetta er eftirsótt vara sem er oft og víða á borðum og þykir gott meðlæti. Salat nýtur engrar tollverndar, ólíkt því sem gerist með ýmsa innlenda framleiðslu og því þarf að beita mikilli útsjónarsemi í rekstri.

„Þegar ég byrjaði að stunda ræktun lætur nærri að Íslendingar hafi ekki borðað grænmeti. Ástandið breyttist svo smám saman. Fjölbreytni varð meiri og farið var að halda vörunni meira að neytendum. Allt byggist þetta á því að rekstur, ræktun og starfsemi séu í stöðugri endurskoðun og sú viðleitni ráðandi að gera sífellt betur,“ segir Hafberg sem í húsum sínum ræktar einnig spínat.

Einnig er þar nú, eftir nokkurt hlé, að hefjast ræktun á kryddjurtum, svo sem graslauk, dilli, rósmaríni, steinselju og kóríander svo eitthvað sé tiltekið.

Grænmetið er selt til Grænlands

„Markaðurinn er alltaf að stækka og salat er víða á borðum. Uppskeran fer í plastöskjur og fer frá okkur í verslanir, á veitingastaði og í mötuneyti. Þetta er vaxandi markaður hér heima og svo bætist Grænland við, þangað sem við sendum svolítið í hverri viku,“ segir Hafberg þegar hann sýnir blaðamanni stöðina í Lambhaga.

Að kvöldi dags veita þeir sem fara um Vesturlandsveg eða Grafarholt gjarnan þessari stöð athygli þar sem lýsingin í gróðurhúsunum endurvarpast upp í kolsvartan himininn. Margt er raunar mjög eftirtektarvert í Lambhaga, í starfsemi sem er hátæknivædd í bak og fyrir. Aðstæður í gróðurhúsum eru stilltar af með tölvubúnaði. Hitastig þarf að vera rétt, einnig næringargildi í vatni og svo framvegis. Þá er lífrænum vörnum beitt til þess að halda óværunni í skefjum. Hér er bókstaflega hugsað fyrir öllu enda kunnáttumaður við störf.

„Viðskiptavinir ganga að hreinleika vara héðan vísum. Einnig að varan er fengin úr nærumhverfi þeirra og því er kolefnisspor flutninga lítið. Sjálfbærni er leiðarljós; bæði hér og inni í Mosfellsdal en stöðin þar er ein sú tæknivæddasta í heimi. Þar búum við líka svo vel að hafa sjálf hitaréttindi og vatnslindir, sem skiptir miklu fyrir svona starfsemi. Á 15 hekturum í Lundi höfum við líka stórkostlega vaxtarmöguleika. Á sama tíma þrengir að hér á Lambhaga í Úlfarsárdal vegna áforma um þéttingu byggðar,“ segir Hafberg Þórisson, sem er formaður Búnaðarfélags Reykjavíkur.

Næsta fámennu félagi en góðu, því eins og listaskáldið Jónas orti: þá er bóndi bústólpi og bú landstólpi.